Maharishi Mahesh Yogi færði heiminum Innhverfa íhugun fyrir um 65 árum. Til dagsins í dag hafa um 10 milljónir manna lært tæknina.

Til hvers að læra Innhverfa íhugun?

Innhverf íhugun opnar dyrnar að fullum andlegum þroska. Víðtækar rannsóknir hafa sýnt að hún dregur úr streitu og kvíða sem kemur fram í auknum innri friði, sköpunarmætti, betri heilsu, árangri og hamingju.

Kennslan

Innhverf íhugun (Transcendental Meditation eða TM) er aðeins kennd frá manni til manns af sérmenntuðum kennurum. Iðkað er tvisvar á dag í stól með lokuð augu.

Næsta námskeið hefst ...

í miðstöð Íslenska íhugunarfélagsins í
Þórunnartúni 2 (áður Skúlatún) í Reykjavík

föstudaginn 22. mars 2024 kl.19:30

Námskeiðsgjaldið er 80.000 kr. en fyrir námsmenn og atvinnulausa eða á eftirlaunum er námsgjaldið 50.000 kr. og fyrir hjón 100.000 kr. 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Transcendental Meditation in Action

„Innhverf íhugun í raun - hvað segir fólk" (11 mín.)

Kynntu þér Innhverfa íhugun

Þessi einfalda og áreynslulausa tækni er í grundvallaratriðum frábrugðin öðrum íhugunar- og sjálfsþroskaaðferðum. 

Ókeypis námskeið í Maharishi AyurVed á netinu

Maharishi alþjóðaháskólinn í Fairfield í Iowa (www.miu.edu) býður um þessar mundir upp á frábært námskeið á netinu sem heitir „Kynning á Maharishi AjurVeda". Námskeiðið er öllum opið og ókeypis í þeim tilgangi styðja heilsu fólks um allan heim. Það er kennt af dr. Karin Pirc og dr. Keith Wallace. Fyrir neðan er hlekkur á námskeiðið.

AyurVeda er elsta heilsufræði veraldar, með ólíkindum áhrifarík og hagnýt. Maharishi vann að endurvakningu þessara fræða í samvinnu við helstu sérfræðinga Indlands á níunda áratug síðustu aldar undir heitiinu Maharishi AyurVeda.

https://www.miu.edu/introduction-to-mav?fbclid=IwAR0ZBk8bBap1QmpwylBPYm-DB-dT3xSrKnSRIgV5O3z72U7IckWcBKIuPS0

 

Innhverf íhugun er ekki trú eða heimspeki og krefst engra breytinga á lífsstíl. Auðvelt er að læra tæknina og hún er iðkuð af fólki á öllum aldri, af öllum þjóðernum, trúarbrögðum og stéttum.meira