Innhverf íhugun
fyrir frið í samfélaginu og heimsfrið

Streita eykur ótta, viðbragðsmiðaða hegðun, þröngsýni og óþolinmæði. Uppsöfnuð streita skapar skilyrði fyrir átakahegðun í samfélaginu. Ef innhverf íhugun dregur úr streitu, er hún þá fær um að lyfta vitund samfélagsins í heild? Getur innri friður framkallað heimsfrið?

Innhverf íhugun
fyrir frið í samfélaginu og heimsfrið

Streita eykur ótta, viðbragðsmiðaða hegðun, þröngsýni og óþolinmæði. Uppsöfnuð streita skapar skilyrði fyrir átakahegðun í samfélaginu. Ef innhverf íhugun dregur úr streitu, er hún þá fær um að lyfta vitund samfélagsins í heild? Getur innri friður framkallað heimsfrið?

Vísindaleg staðfesting á áhrifum innhverfrar íhugunar á samfélagið og frið

Streita einstaklings hefur áhrif á hvernig heilinn virkar og getur breytt hegðun. Sýnt hefur verið fram á að streita dregur úr virkni í framheila sem leiðir til árásargjarnari, óttamiðaðrar og ofbeldisfullrar hegðunar. Þegar streita eykst í samfélaginu geta samsöfnuð áhrif komið fram sem átök og stríð.

Strax árið 1962 spáði Maharishi Mahesh Yogi, upphafsmaður innhverfrar íhugunar, því að „jafnvel þótt aðeins eitt prósent jarðarbúa myndi íhuga nægði það til að útrýma því hatri sem veldur stríði“. Síðan hefur verið sýnt fram á að þessi kenning – sem er þekkt undir heitinu „Maharishi-hrifin“ – þýðir að ef innhverf íhugun sidhi-tæknin (the TM-Sidhis Program), sem er framhaldstækni innhverfrar íhugunar, er iðkuð af hópi fólks nægir að aðeins kvaðratrótin af 1% iðki hana saman til að framkalla Maharishi-hrifin.

Maharishi-hrifin hafa verið prófuð í yfir 50 tilraunum og hafa leitt til 23 birtra rannsókna sem sýna fram á jákvæðar breytingar í samfélaginu og dvínandi áhrif stríðs í samræmi við stærð hópa sem stunda innhverfa íhugun og innhverfa íhugun sidhi-tæknina. Þessi áhrif urðu ekki til með því að hugsa um eða óska eftir friði, heldur sem afleiðing af hópiðkun tækninnar.

Næsta námskeið

„Má nýta þessa þekkingu á heilanum og hegðun til að skapa varanlegan frið í samfélaginu?“

Dr. John Hagelin, skammtaeðlisfræðingur menntaður í Hardvard-háskóla í Bandaríkjunum, ávarpar heimsráðstefnu friðarverðlaunahafa Nóbels í Monterrey, Mexíkó, september 2024
16 mín.

Innvherf íhugun og dvínandi áhrif stríðs í Mið-Austurlöndum

Árið 1983 komu iðkendur innhvefrar íhugunar saman í Jerúsalem til að sannreyna Maharishi-hrifin í stríði á milli Ísraels og Líbanon. Hópurinn hafði tölfræðilega marktæk áhrif á þá þætti sem mældir voru í rannsókninni.

Þá daga sem fjöldi þátttakenda var mikil fækkaði dauðsföllum af völdum stríðs í Líbanon um 76%. Tilraunin sýndi fram á samfélagslegar breytingar á lífsgæðum í Jerúsalem og Ísrael og á stríðsrekstur í Líbanon.

Sex endurtekningar á rannsókninni í Mið-Austurlöndum

Rannsóknin í Ísrael og Líbanon var endurtekin sex sinnum næstu 2 ár á eftir.

Niðurstöða af þeirri íhlutun fól m.a. í sér að:

– stríðstengdum dauðsföllum fækkaði um 71%

– stríðstengdum meiðslum fækkaði um 68%

– hernaðarátök drógust saman um 48%

– samvinna á milli átakaaðila jókst um 66%

 

Næsta námskeið

Innhverf íhugun og bætt lífsgæði í Bandaríkjunum

Rannsókn sem náði yfir 17 ára tímabil sýndi fram á víðtækar og heildstæðar umbætur á margs konar mælingum á gæðum lífs í Bandaríkjunum þegar fjöldi þeirra sem kom saman til að iðka innhverfa íhugun og innhverfa íhugun sidhi-tæknina í Maharishi alþjóðaháskólanum í Fairfield í Bandaríkjunum fór yfir kvaðratrótina af 1% af íbúafjölda Bandaríkjanna (1725 manns),

Morðum, nauðgunum, líkamsárásum, ránum, ungbarnadauða, fíkniefnatengdum dauðsföllum, dauðsföllum í umferðinni og dauðsföllum af völdum slysa hjá börnum fækkaði verulega.

Fleiri kostir innhverfrar íhugunar

Streita og kvíði

Meira

Skýrari hugur

Meira

Líkamleg heilsa

Meira

Samskipti

Meira

Í átt að raunverulegum og varanlegum heimsfriði

Draga má þá ályktun, með 40 ára reynslu af Maharishi-hrifunum að baki, að mögulegt sé að lyfta samvitund samfélagsins ef næglegur fjöldi einstaklinga iðkar innhverfa íhugun og innhverfa íhugun sidhi-tæknina saman í hópi.

Íhugunarhreyfingin, undir stjórn dr. Tony Nader, helgar krafta sína því að koma á fót einum eða fleiri hópum 10.000 iðkenda innhverfrar íhugunar.

Eitt nýjasta dæmið um Maharishi-hrifin, með yfir 10.000 þátttakendum, átti sér stað í Hyderabad á Indlandi í janúar 2024.

Næasta námskeið

Rannsóknir á innhverfri íhugun og heimsfriði

Námskeið í innhverfri íhugun

Skipulag námskeiðsins, upplýsingar um kennarann þinn, tímaáætlun og námskeiðsgjald.

Næsta námskeið