Hverjir eru kostir innhverfrar íhugunar?
Hverjir eru kostir innhverfrar íhugunar?
Sannreynd áhrif
innhverfrar íhugunar
Ríflega 600 ritrýndar rannsóknir hafa verið birtar á innhverfri íhugun frá árinu 1970 til dagsins í dag. Slíkur fjöldi rannsókna á sér enga hliðstæðu í rannsóknum á einstökum hugleiðsluaðferðum.
Þessi rannsókn sýnir að innhverf íhugun hefur mikilvæg áhrif á andlega og líkamlega heilsu – auk áhrifa á tilfinningavellíðan:
- bætt heilastarfsemi
- aukin atorka
- aukin sköpunarhæfni
- vitundarvíkkun
- aukið heilbrigði hjarta-og æðakerfis
- betri svefn
Hundruð vísindarannsókna hafa sýnt fram á margvíslega kosti innhverfrar íhugunar
Innhverf íhugun
við streitu og kvíða
Innhverf íhugun hefur reynst eitt árangursríkasta verkfæri sem til er til að útrýma streitu og draga úr streitutengdum vandamálum: kvíðaröskun, þunglyndi, áfallastreituröskun, lélegurm svefni, svefnleysi og fleiru.
Innhverf íhugun
til að auka skýrleika hugans
Með reglulegri iðkun innhverfrar íhugunar upplifa iðkendur vitundarvíkkun sem auðgar daglegt líf og stuðlar að skýrri og frjórri hugsun. Slíkt hefur í för með sér aukna hæfni til að sigrast á áskorunum.
Innhverf íhugun
fyrir bætta heilsu
Að draga úr streitu hefur jákvæð áhrif á alla líkamsstarfsemina. Sýnt hefur verið fram á að innhverf íhugun bætir starfsemi hjartans, dregur úr háum blóðþrýstingi og leiðir til minni þarfar fyrir læknisþjónustu auk þess að styrkja ónæmi.
Innhverf íhugun
til að bæta samskipti
Þegar við erum róleg og kjörnuð einkennist hegðun okkar síður af ósjálfráðum viðbrögðum, við verðum umburðarlyndari og umhyggjusamari. Rannsóknir sem gerðar voru á nemendum, starfsfólki, hermönnum og föngum sem iðkuðu innhverfa íhugun sýndi fram á bætt samskipti þeirra sem íhuguðu.
Innhverf íhugun
til að stuðla að friði í samfélaginu og heimsfriði
Innri friður einstaklinga getur haft jákvæð áhrif á samvitund samfélagsins og heimsins. Rannsóknir sýna að áhrif stórra hópa sem iðka innhverfa íhugun og hina háþróuðu TM-Sidhi tækni tengjast jákvæðum breytingum í samfélaginu og minni áhrifum stríðsátaka.
Næsta skref: Kennsla í innhverfri íhugun
Frekari upplýsingar um námskeið í innhverfri íhugun, þar á meðal varðandi uppbyggingu, námsgjald og hvað er innifalið.
