Innhverf íhugun
við streitu og kvíða

Streita hefur áhrif á alla og getur komið í veg fyrir að við nýtum hæfilæka okkar til fulls. Hjá sumum getur streita verið lamandi og birst sem þunglyndi, kvíði og athyglisbrestur. Hvort sem þú átt velgengni og lífshamingju að fagna eða ekki getur innhverf íhugun stuðlað að því að þú njótir lífsins betur með því að uppræta streitu.

Innhverf íhugun við streitu og kvíða

Streita hefur áhrif á alla og getur komið í veg fyrir að við nýtum hæfilæka okkar til fulls. Hjá sumum getur streita verið lamandi og birst sem þunglyndi, kvíði og athyglisbrestur. Hvort sem þú ert hamingjusamur/hamingjusöm og farsæl(l) – eða ert langt frá því – getur innhverf íhugun stuðlað að því að þú njótir lífsins betur með því að uppræta streitu.

Vísindarannsóknir á áhrifum innhverfrar íhugunar gegn streitu og kvíða

Innhverf íhugun er öflugt tæki sem sýnt hefur verið fram á með rannsóknum að dregur úr kvíða og öðrum kvillum með því að draga á áþreifanlegan hátt úr streitu.

Hér eru nokkur af þeim áhrifum sem innhverf íhugun hefur á andlega líðan:

  • dregur úr áfallastreituröskun (PTSD)
  • dregur úr þunglyndi
  • dregur úr kortisóli
  • dregur úr kvíða
  • bætir svefn og dregur úr svefnleysi

Næsta námskeið

„Þegar streitusvörun er viðvarandi fáum við of háan blóðþrýsting.“

Fred Travis, Ph.D., prófessor í sálfræði
2 mín.

Árangursríkari en aðrar aðferðir
til að draga úr lyndiskvíða

Lyndiskvíði (e. trait anxiety) er mælikvarði á varanlega kvíðatilfinningu andstætt ástandskvíða (e. state anxiety), sem mælir kvíðaástand á tilteknu augnabliki. Yfirlitsgreining á 146 mismunandi rannsóknum leiddi í ljós að iðkun innhverfrar íhugunar var ríflega tvöfalt árangursríkari en aðrar slökunartaðferðir til að draga úr lyndiskvíða.

Róandi áhrif innhverfrar íhugunar á taugakerfið hjálpa einstaklingum að stjórna og jafna sig eftir áfall.

Næsta námskeið

Innhverf íhugun dregur um 30% úr magni kortisóls, hormóni sem tengist streitu

Þegar við erum stressuð kveikir mandlan, eða „óttastöð“ heilans á nýrnahettunum til að losa streituhormónið kortisól. Langvarandi streita tengist hækkuðu magni kortisóls, sem oft kemur fram sem kvíði, þunglyndi og pirringur.

Regluleg iðkun innhverfrar íhugunar dregur úr kortisóli og hjálpar líkamanum að viðhalda stöðugra hormónastigi.

Innhverf íhugun dregur úr einkennum áfallastreituröskunar og þunglyndis um 20,5%

Nokkrar vísindarannsóknir sýna fram á árangur innhverfrar íhugunar í meðferð sjúklinga með áfallastreituröskun.

Ein rannsókn sýndi að innhverf íhugun minnkaði þörfina fyrir geðlyf sem nauðsynleg voru fyrir meðferð við kvíða og áfallastreituröskun og jók sálræna vellíðan. Um 20,5% munur var á innhverfri íhugun og samanburðarhópnum með tilliti til alvarleika sálrænna einkenna að sex mánuðum liðnum.

Næsta námskeið

3 mín.

Hvernig innhverf íhugun dregur úr streitu og kvíða

myndband með Jennifer Ashton lækni, í samvinnu við David Lynch stofnunina.

Rannsóknir á innhverfri íhugun, streitu og kvíða

Fleiri kostir innhverfrar íhugunar

Skýrari hugur

Meira

Betri heilsa

Meira

Sambönd

Meira

Heimsfriður

Meira

Námskeið í innhverfri íhugun

Skipulag námskeiðsins, tímaáætlun og námskeiðsgjald.

Næsta námskeið