Byrjaðu leiðarngurinn með kynningu Íslenska íhugunarfélagsins á innhverfri íhugun

Í hverju er innhverfa íhugun fólgin?

Skráðu þig á ókeypis kynningu
Horfðu á myndbandið

Lærðu hjá réttindakennurum á höfuðborgarsvæðinu

Innhverfa íhugun er aðeins hægt að læra hjá réttindakennurum á námskeiði sem er vandlega sérsniðið að hverjum einstaklingi.

Gagnreyndur ávinningur

Skýrari hugsun og sköpunarhæfni

Bætt heilastarfsemi eykur yfirsýn hugans á sama tíma og hún eykur einbeitingar- og sköpunarhæfni. Þetta auðveldar hverjum og einum að ná markmiðum sínum.

Dregur úr streitu og kvíða

Aukið þol gegn streitu og aukin geta til að takast á við krefjandi aðstæður af yfirvegun og ró. Rannsóknir sýna að innhverf íhugun er einnig árangursrík í meðferð við áfallastreituröskun (PTSD) og athyglisbresti (ADHD).

Betri svefn og heilsa

Djúp hvíld styrkir náttúruleg heilunarviðbrögð líkamans, bætir hjartaheilsu, ónæmi, svefngæði og streitutengda kvilla.

Hvað gerist við iðkun innhverfrar íhugunar?

Innhverf íhugun er stunduð sitjandi í þægilegri stöðu, með augun lokuð, í 20 mínútur tvisvar á dag. Meðan á iðkuninni stendur leitar hugurinn náttúrulega inn á við, í átt að hljóðari stigum vitundarinnar, án einbeitingar og stjórnunar. Við það upplifir þú tæra vitund – einstakt ástand djúprar hvíldar sem hjálpar líkama og huga að endurheimta jafnvægi.

Emily Fitz Randolph, löggiltur TM-kennari
3 mins
Spurningar?
Hafðu samband við
Reykjavík TM-miðstöðina
Kynntu þér löggilta kennarann þinn: Ari Halldórsson
Hringdu: 820 2857
Sendu okkur skilaboð
Algengar spurningar
Innhverf íhugun er kennd af félagi sem starfar án ágóða og skuldbindur sig til að gera sem flestum kleift að læra tæknina. Í því skyni er komið til móts við tekjulága einstaklinga með lægra námskeiðsgjaldi og hægt er að greiða það með afborgunum.

Þetta er svipað því að læra á hljóðfæri eða læra tiltekna íþrótt. Flestir vita hversu dýrmætt er að hafa góðan kennara til að sýna rétta réttu tæknina.

Á sama hátt tryggir einstaklingsmiðuð kennsla í innhverfri íhugun persónulega námsupplifun, sem gerir nemandanum kleift að læra tæknina á áreynslulausan og nákvæman hátt og leggja þannig grunninn að langtímaiðkun.

Ekki er hægt að læra innhverfa íhugun með neinum öðrum hætti – og það er ekkert sem staðfestir að eitthvað annað geti framkallað þau víðtæku áhrif sem staðfest eru í birtum rannsóknum á aðferðinni.

Innhverf íhugun gerir huganum kleift að fara inn á við, út fyrir svið hugsana, í áttina að æ hljóðari sviðum hugans uns hljóðasta og friðsælasta sviði vitundarinnar er náð.
Það er ekki vandamál. Ólíkt öðrum hugleiðsluaðferðum felur innhverf íhugun ekki í sér neina einbeitingu, enga stjórnun á huganum, engar hugrenningar og enga athyglisstjórnun. Iðkunin er algerlega áreynslulaus.
Árangur af iðkun innhverfrar íhugunar er sá sami hvort sem þú telur að tæknin muni virka eða ert full(ur) efasemda. Ástæðan er sú að tæknin gerir hinum virka huga færi á að kyrrast og upplifa ástand djúprar innri kyrrðar. Áreynslulaust og af sjálfsdáðum.
Við iðkun núvitundaraðferða fylgist þú með hugsunum þínum, tilfinningum, öndun og líkamlegum tilfinningum án þess að dæma þær. Þetta heldur huganum uppteknum á virku sviði hugans, eins og margar aðrar hugleiðsluaðferðir gera. Oft gerum við okkur ekki grein fyrir að undir virku yfirborði hugans er nú þegar að finna djúpa kyrrð. Með svipuðum hætti og að í djúpi hafsins er að finna stöðuga kyrrð. Innhverf íhugun hjálpar huganum að „transendera“, þ.e. að fara út fyrir svið hugsana og opna athyglina fyrir dýpri og friðsælli sviðum hugans.
Ævistarf Maharishi Mahesh Yogi fólst í að endurvekja og svipta dularhjúpnum af þeirri tímalausu þekkingu sem hugleiðsla er og sannreyna áhrif hennar með hjálp nútíma vísinda. Hann hóf að kenna innhverfa íhugun í byrjun sjötta áratugar síðustu aldar. Eftir að hafa fínslípað og gert kennsluna kerfisbundna stofnaði Maharishi hreyfingu sína í þeim tilgangi að gera tæknina aðgengilega um allan heim. Hann hafði umsjón með þjálfun þúsunda kennara og kom á fót óhagnaðardrifinni stofnun til að standa vörð um áreiðanleika og uppruna innhverfrar íhugunar um ókomin ár.