Betri heilsa með innhverfri íhugun

Streita hefur neikvæð áhrif á heilsu og ýtir undir svefntruflanir, háþrýsting, hjartasjúkdóma, veikburða ónæmisvirkni og ýmiss konar aðra kvilla og sjúkdóma. Með því að uppræta streitu bætir innhverf íhugun líkamlega líðan: stuðlar að heilbrigðari hjartastarfsemi, betri svefni og aukinni orku.

Betri heilsa með innhverfri íhugun

Streita hefur neikvæð áhrif á heilsu og ýtir undir svefntruflanir, háþrýsting, hjartasjúkdóma, veikburða ónæmisvirkni og ýmiss konar aðra kvilla og sjúkdóma. Með því að uppræta streitu bætir innhverf íhugun líkamlega líðan: stuðlar að heilbrigðari hjartastarfsemi, betri svefni og aukinni orku.

Rannsóknir á innhverfri íhugun og heilsu

Hundruð ritrýndra rannsókna hafa staðfest víðtæk áhrif innhverfrar íhugunar á heilsu. Aðeins 20 mínútna iðkun innhverfrar íhugunar tvisvar á dag getur stuðlað að bættri almennri heilsu og vellíðan til langframa.

Nokkur dæmi:

  • djúpur og endurnærandi svefn
  • minna kortisól
  • meiri ró og jafnvægi hugar og líkama
  • heilbrigðara hjarta og blóðþrýstingsjafnvægi
  • meiri orka og styrkara ónæmiskerfi
  • aukin atorka og lægri líffræðilegur aldur

Næsta námskeið

5 mín.

„Þegar ég nota innhverfa íhugun í minni meðferð
verða framfarirnar allt að 48-66% betri.“

Myndband með Dr. Susan Steinbaum, Lennox Hill Hospital, í samstarfi við David Lynch Foundation

Innhverf íhugun bætir svefngæði

Innhverf íhugun dregur verulega úr magni streitutengdra hormóna, þar á meðal kortisóls, sem hefur áhrif á mörgum sviðum lífsins, einkum á svefngæði.

Iðkun innhverfrar íhugunar hefur einnig í för með sér aukningu serótóníns, taugaboðefnis sem gegnir lykilhlutverki í að stilla geðsveiflur og dagsveiflur svefns og vöku. Heilbrigt magn serótóníns stuðlar að endurnærandi svefni sem eykur almenna vellíðan og mótstöðu gegn veikindum.

Betri svefn stuðlar ekki aðeins að minni þreytu heldur styður einnig tilfinningalegt jafnvægi, sem leiðir til jafnaðargeðs yfir daginn.

Næsta námskeið

Innhverf íhugun stuðlar að heilbrigðara hjarta

Rannsóknir hafa sýnt að iðkun innhverfrar íhugunar stuðlar að heilbrigðara hjarta og dregur úr hættu á hjarta- og æðasjúkdómum. Reglubundin iðkun dregur marktækt úr háþrýstingi og kólesteróli samtímis því að bæta insúlínviðnám.

Með slökun og minni streitu stuðlar iðkun innhverfrar íhugunar að því að koma í veg fyrir myndun skellna í slagæðum, sem er stór þáttur í hjarta- og æðasjúkdómum. Að auki stuðla róandi áhrif iðkunarinnar að betri blóðrás sem dregur enn frekar úr hættu á heilablóðfalli.

„Sannreynt hefur verið að innhverf íhugun upprætir streitu í taugakerfinu. Hvaða áhrif telur þú að það hafi á heilsuna?”

Mario Orsatti, kennari í innhverfri íhugun
3 min

Innhverf íhugun dregur úr þörfinni fyrir læknisþjónustu

Í vettvangsrannsókn, sem náði yfir fimm ára tímabil, var borin saman notkun læknisþjónustu hjá um 2.000 tryggingatökum (Blue Cross Blue Shield) sem stunduðu innhverfa íhugun. Um 600.000 tryggingatakar sama fyririrtækis voru notaðir til samanburðar. Fríðindi, sjálfsábyrgðir, tryggingarskilmálar og kyndreifing iðkenda innhverfrar íhugunar var mjög svipuð og hjá samanburðarhópnum.

Samt sem áður var notkun læknisþjónustu hjá þeim sem stunduðu innhverfa íhugun mun minni í öllum flokkum. Sjúkrahúsinnlagnir á legudeild voru um 50% færri hjá börnum og yngra fólki og 69% færri hjá fullorðnum á aldrinum 40 ára og eldri. Göngudeildarheimsóknir í sömu aldurshópum á hverja 1000 voru í sömu röð: 46,8%, 54,7% og 73,7% færri.

2 mín.

„Streitusvörunarkerfi líkamans stöðvar virkni ónæmiskerfisins.”

Fred Travis, Ph.D., sálfræðingur og prófessor

Iðkun innhverfrar íhugunar lækkar blóðþrýsting hjá fólki með háþrýsting

Samkvæmt bandarísku sóttvarnarstofnuninni (CDC) eru 48% fullorðinna með of háan blóðþrýsting (háþrýsting) og aðeins fjórðungur þeirra hefur stjórn á honum. Verulegar vísbendingar eru um að sálfélagsleg streita stuðli að háþrýstingi.

Fleiri kostir innhverfrar íhugunar

Skýrari hugur

Meira

Minni kvíði

Meira

Sambönd

Meira

Heimsfriður

Meira

Námskeið í innhverfri íhugun

Skipulag námskeiðsins, upplýsingar um kennarann þinn, tímaáætlun og námskeiðsgjald.

Næsta námskeið