Hvað er innhverf íhugun?

Innhverf íhugun (e. Transcendental Meditation Technique) er einföld og áhrifarík aðferð til að njóta innri friðar, losa streitu og opna aðgang að fullu atgervi hugans. Iðkun innhverfrar íhugunar er auðveld og ánægjuleg. Hver sem er getur stundað tæknina sitjandi í stól í 20 mínútur tvisvar á dag. Í iðkuninni felst engin áreynsla.

Hvað er innhverf íhugun?

Innhverf íhugun (e. Transcendental Meditation Technique) er einföld en engu að síður mjög áhrifarík aðferð til að njóta innri friðar, losa streitu og opna aðgang að fullu atgervi hugans. Iðkun innhverfrar íhugunarer auðveld og ánægjuleg. Hver sem er getur stundað tæknina sitjandi í stól í 20 mínútur tvisvar á dag. Í iðkuninni felst engin áreynsla.

„Með innhverfri íhugun upplifum við djúpa, innri uppsprettu sköpunar og kyrrðar.”

Emily Fitz Randolph, réttindakennari í innhverfri íhugun
2 mín.

Skráðu þig á ókeypis kynningarfund

Athugaðu hvenær næsta kynning á  innhverfri íhugun er. Reglulega er boðið upp á ókeypis kynningarfundi.

Skráning

„Iðkun innhverfrar íhugunar víkkar vitundina og undirbýr hugann fyrir hvers konar reynslu í kjölfarið.”

Fred Travis, Ph.D., prófessor í sálfræði
2 mín.

Innhverf íhugun er ekki…

– trú eða trúarbrögð. Þar af leiðandi stangast hún ekki á við trú okkar – eða trúleysi.

– trúarkerfi. Til þess að tæknin virki er ekki einu sinni nauðsynlegt að hafa trú á því.

Innhverf íhugun er frábrugðin öðrum tegundum hugleiðslu, bæði með tilliti til iðkunarinnar sjálfrar og með tilliti til þeirra jákvæðu áhrifa sem hún hefur á huga og líkama.

 

Kostir innhverfrar íhugunar

Hvernig er innhverf íhugun frábrugðin?

Innhverf íhugun er frábrugðin öðrum hugleiðsluaðferðum sem eiga það sameiginlegt að viðhalda virkni á yfirborðssviði hugans. Iðkun innhverfrar íhugunar einkennist aftur á móti af því að það hægir á hugrænni virkni, hugurinn fer út fyrir svið hugsana með innhreyfingu athyglinnar (hann „transenderar“). Innhverf íhugun stuðlar að heilastarfsemi sem ekki á sér sinn líka og hefur fjölmarga heildræna kosti í för með sér. Iðkunin er jafnframt algjörlega áreynslulaus og því er mun auðveldara að ná tökum á henni en annarri hugleiðslu.

4 mín.

Hvernig virkar innhverf íhugun? „Með því að hagnýta eðlilega tilhneigingu hugans til að sækja í áttina að meiri hamingju.“

Mario Orsatti, kennari í innhverfri íhugun

Innhverf íhugun: einstakt ástand „vökullar hvíldar“

Rannsóknir síðastliðinna 55 ára sýna að iðkun innhverfrar íhugunar veldur einstöku lífeðlisfræðilegu ástandi sem einkennist af djúpri líkamlegri hvíld á meðan hugurinn er vakandi.

Þetta ástand einkennist af snarpri lækkun á öndunartíðni, auknu blóðflæði til heila og aukningu á samræmi og samþættingu í starfsemi heilans. Slíkt bendur svo aftur til minnkunar á streitu sem kemur fram í minna magni kortisóls, vöðvaslökun, minna laktati í slagæðablóði og aukinni leiðnisvörun í húð.

Vísindamenn hafa komist að þeirri niðurstöðu að innhverf íhugun framkalli fjórða megin vitundarástand mannsins, þ.e.a.s. „transendental“ vitund, eða ástand vökullar hvíldar sem er skýrt aðgreinanlegt frá vöku, djúpsvefni og draumsvefni. Þetta ástand er sérstakt fyrir innhverfa íhugun.

Maharishi Mahesh Yogi

Upphafsmaður innhverfrar íhugunar

Maharishi Mahesh Yogi er best þekktur sem upphafsmaður innhverfrar íhugunar. Hann endurvakti með kerfisbundnum hætti og svipti dularhjúpnum af innhverfri íhugun í þeim tilgangi að deila tækninni með fólki um allan heim. Árið 1957 hóf Maharishi að ferðast um heiminn og kenna innhverfa íhugun. Hann hafði umsjón með þjálfun þúsunda kennara í innhverfri íhugun og setti á fót sjálfseignarstofnun í þeim tilgangi að varðveita og standa vörð um hina upprunalegu tækni.

Dr. Tony Nader

Mahrishi valdi dr. Tony Nader sem eftirmann sinn til að stýra hinni alþjóðlegu íhugunargreyfingu. Hann er menntaður læknir frá Harvard-háskóla og Massachusetts Institute of Technologi (MIT) í Bandaríkjunum auk þess að vera frammúrskarandi sérfræðingur í vedískum fræðum. Í dag er dr. Nader leiðtogi íhugunarsamtakanna og allrar kennslu og kennara á þeirra vegum í um 100 löndum. Dr. Nader leiðir hina merku arfleifð Maharisi inn í 21. öldina með því að færa vitundarvísindi Maharishi nýjum kynslóðum og víkka skilning okkar á möguleikum mannsins.

Veldu leiðir hér til að halda áfram að fræðast

Kynningarfundur með kennara

Taktu þátt í kynningarfundi með kennara.

Næsta námskeið

Horfðu á kynningu hér á vefsíðunni

Kynning á innhverfri íhugun.

Hlýddu á kynningu á innhverfri íhugun