stelpa uti

 
 
 
 

Innhverf íhugun er kennd með sama kerfisbundna
hætti og gert var fyrir þúsundum ára

skulatun300

Næstu námskeið í Innhverfri íhugun hefjast í Reykjavík, Skúlatúni 2 (Þórunnartún), föstu-dagana 5.apríl, 3. maí og 24. maí kl. 19:30. 

Námsgjaldið er kr. 30.000 og er eftirfylgnin innifalin.

Skráðu þig á námskeiðið. Haft verður samband við þig í kjölfarið.
skraning

 

 

Hvernig kennd

Innhverf íhugun er kennd í sjö skrefum. Að þeim loknum er iðkandinn fær um að iðka tæknina á eigin spýtur en nauðsynlegt er að koma reglubundið í „könnun“ þ.e. einkatíma þar sem íhugað er með kennara til að tryggja rétta iðkun. Slíkir tímar eru skipulagðir reglulega með viku millibili til að byrja með, síðan mánaðar millibili í minnst sex mánuði. Eftir það getur iðkandinn pantað könnun þegar honum þykir nauðsynlegt. Skipulag námskeiða er með eftirfarandi hætti:

Skref
Dagur
Tími
Efni
Lengd
1-3 föstud. 19:30 kynning, undirbúningur og viðtal 2 klst.
4 laugard. samkomulag einkakennsla 1 klst.
5 sunnud. 19:30 fyrirlestur og umræður 1,5 klst.
6 mánud. 19:30 fyrirlestur og umræður 1,5 klst.
7 þriðjud. 19:30 fyrirlestur og umræður 2 klst.