david lynch

 
 

„Innhverf íhugun er einföld, áreynslulaus leið til þess að
„kafa inn á við“, til þess að upplifa hafsjó tærrar vitundar,
tærrar sköpunarhæfni, tærrar þekkingar. Reynslan er einstök
en jafnframt kunnugleg – þetta er þitt eigið Sjálf.“

–David Lynch, kvikmyndagerðarmaður og stofnandi David Lynch styrktarsjóðsins fyrir vitundarmiðaða menntun og heimsfrið.

David Lynch, stofnandi og stjórnar-formaður David Lynch styrktarsjóðsins fyrir vitundarmiðaða menntun og heimsfrið, er verðlaunaður leikstjóri, handritshöfundur og kvikmynda-framleiðandi.  Meðal verka hans eru kvikmyndirnar Eraserhead, The Elephant Man (Fílamaðurinn), Wild at Heart, Blue Velvet, Lost Highway, The Straight Story, Mulholland Drive, Inland Empire og sjónvarpsþáttaröðin Twin Peaks (Tvídrangar).

Ataksverkefni David_Lynch

Óhætt er að segja að heimsókn kvikmyndaleikstjórans David Lynch í maí 2009 hafi blásið lífi í starfsemi Íslenska íhugunarfélagsins.  Í júlí sama ár opnaði félagið kennslumiðstöð í Skúlatúni 2 í Reykjavík. Síðan þá hafa um 1.400 einstaklingar lært Innhverfa íhugun.  Víst er að sá hópur sem lært hefur og stundar Innhverfa íhugun hefur nú þegar haft veruleg áhrif á samfélagið, m.a. með því að draga úr neikvæðum áhrifum bankahrunsins.

Aðstandendur Íslenska íhugunarfélagisins vilja þakka David Lynch og styrktarsjóði hans fyrir ómetanlegt framlag. 

Smellið á krækjurnar hér að neðan og kynnið ykkur starfsemi David Lynch Foundation.  Þar eru að finna mörg áhugaverð verkefni sem þessi ágæti sjóður hefur kosið að styrkja.

Fiskad big

  DLFtv logo

 MxtJJaY