Átaksverkefni
David Lynch á Íslandi Hátt
í áttahundrað manns
hafa lært Innhverfa
íhugun undanfarið
Námskeið
í Innhverfri íhugun
hafa nú staðið yfir
frá því í júlí á síðasta
ári og
hafa um hátt í 800
manns
lokið
þeim. Þessi mikli fjöldi
vekur vonir um að hægt
verði að mynda nægilega
stóran hóp iðkenda
til þess að hafa veruleg
áhrif
á samfélagið.
Svipaður fjöldi og
lært hefur á undanförnum
mánuðum bíður þess
að komast á námskeið
á nýju ári.
Námskeiðin
hafa verið niðurgreidd
af Íslenska íhugunarfélaginu
og Sjóði David Lynch
í New York og kosta
tímabundið aðeins kr.
10.000. Reiknað er
með að hægt verði að
bjóða námskeiðin á þessu
verði fram á sumar.
Sex
sérmenntaðir kennarar
hafa
sinnt kennslu
í Innhverfri
íhugun frá því í
byrjun
júlí.
Þeir eru:
Ari
Halldórsson,
kennslustjóri
lista-
og
fjölmiðlasviðs
Borgarholtsskóla,
Árni
Sigurðsson
veðurfræðingur
á
Veðurstofu Íslands,
Kristinn
Arnbjörnsson
tæknifræðingur
hjá
Gatnadeild Reykjavíkurborgar,
Ivanka
Sljivic leikskólakennari
og
Reynir Santuar
þýskukennari
hjá
Mími.
Auk þess
hefur þýskur
kennari, Elke
Jennrich -
sem
kenndi Innhverfa
íhugun
á
vegum Íslenska
íhugunarfélagsins
á árum áður
- komið
tvisvar
hingað til
lands
til að aðstoða
við kennslu.
Um þessar mundir
nýtur félagið
jafnfram aðstoðar
dansks kennara
að nafni Lisbet
Nörgaard sem
meðal annars
aðstoðar
við framhaldsfyrirlestra,
kannanir og
helgarnámskeið.
Bók
David Lynch, Fiskað í
djúpinu, er til sölu
hjá félaginu og kostar
kr. 2.700. Ágóði af sölu
bókarinnar rennur í styktarsjóð
til að niðurgreiða námsgjöld
í Innhverfri íhugun.