skraning
Ef þú átt í erfiðleikum með að lesa efni þessa pósts getur þú smellt HÉR
bordi mahar
  2. desember 2009

Hátt á sjötta hundrað manns
hafa lært Innhverfa íhugun að undanförnu

Frá því að kennsla í Innhverfri íhugun hófst í byrjun júlí hafa hátt á sjötta hundrað manns lært Innhverfa íhugun. Þennan mikla áhuga má rekja til komu kvikmyndaleikstjórans David Lynch til Íslands í maí en fleiri og fleiri hafa þó komið til að læra á síðustu vikum og mánuðum vegna tengsla sinna við þá sem þegar hafa lært. Þó að fjöldinn hingað til nægi ekki til þess að framkalla svokölluð fasaskiptaáhrif í samfélaginu (þ.e.a.s. umtalsverða og tiltölulega snögga breytingu á átt til framfara) sem verður þegar um eitt prósent af íbúafjölda iðkar Innhverfa íhugun, má ætla að áhrif þess að svo margir stunda íhugun komi að einhverju marki fram í bættu ástandi. Fróðlegt verður að líta á tölur um afbrot, slys og heilbrigði frá því í júlí á þessu ári um leið og þær birtast.

Fimmfalt fleiri en nú þegar hafa lært Innhverfa íhugun þarf til þess að fasaskiptaáhrifin verði að veruleika. Við erum komin vel af stað en þurfum að gera betur. Stuðningur ykkar sem hafið lært að undanförnu skiptir sköpum. Miklu máli skiptir að þig hvetjið aðra til að stunda Innhverfa íhugun og nýta sér það tækifæri sem nú býðst til þess að læra á niðurgreiddu verði. Ætla má að niðurgreiðsla námskeiða standi fram á sumar. Tækifærið er því nú og á næstu vikum og mánuðum.

Síðasta námskeið fyrir jól hefst föstudaginn 4. desember. Fyrsta námskeið eftir áramót hefst föstudaginn 15. janúar.

 

 

 

- Verð á námskeiðum kr. 10.000 fram á sumar.

- Hvetjið fólk til að skrá sig á ihugun.is sem fyrst.
- Gefið fólki námskeið í Innhverfri íhugun
- Námskeið hefjast að nýju þann 15. janúar á næsta ári.

 


Ný rannsókn:
Fimmtíu prósent minni líkur á hjártaáfalli, heilablóðfalli og dauða við iðkun Innhverfrar íhugunar!

Á árlegri ráðstefnu Hjartasamtaka Bandaríkjanna (American Heart Association) í Orlando þann 16. nóvember síðastliðinn var birt rannsókn sem sýndi að tíðni hjartaáfalla, heilablóðfalls og dauðsfalla var nærri 50% minni hjá iðkendum Innhverfrar íhugunar miðað við samanburðarhóp sem ekki íhugaði.

Fylgst var með 200 kransæðasjúklingum af afrískum uppruna í 9 ár. Meðalaldur þeirra var 69 ár og var sá hluti hópsins sem valinn var til að stunda Innhverfa íhugun valinn af handahófi. Hinn hluti hópsins hlaut almenna fræðslu um forvarnir og áhættuþætti hjartasjúkdóma, þar á meðal ráðleggingar um mataræði og líkamsþjálfun. Allir þátttakendur héldu hefðbundinni lyfjameðferð áfram.

„Rannsóknir á Innhverfri íhugun hafa hingað til sýnt fram á lækkun á of háum blóðþrýstingi, minnkun sálrænnar streitu og annarra áhættuþátta hjartasjúkdóma. Þetta er hins vegar fyrsta samanburðarrannsóknin sem sýnir að langtíma iðkun þessarar tilteknu streitutækni dregur úr tíðni hjartasjúkdómatilfella, þ.e. hjartaáfalla, heilablóðfalla og dauðsfalla.“ sagði Robert Sneider, einn af aðalhöfundum rannsóknarinnar.

Rannsóknin var styrkt af einni af undirstofnunum Heilbrigðisstofnana Bandaríkjanna (National Institutes of Health) og gerð við Læknaháskóla Wisconsinborgar í Milwaukee í samvinnu við Maharishi University of Management í Fairfield í Iowa. Styrkupphæðin nam 3.8 milljónum dala eða um 470 milljónum króna.

   

Miðvikudagsfundir fram að jólum

2. desember: Þessi framhaldsfundur verður tvískiptur, fyrir karla annars vegar og konur hins vegar. Kennari að utan hefur óskað eftir að ræða við konur á Íslandi og verður í sambandi við hópinn í gegnum Skype. Karlar munu íhuga saman og hlýða á fyrirlestur á eftir í öðrum sal.

9. desember: Efni óákveðið. Þetta verður síðasti framhaldsfyrirlesturinn fyrir jól en framhaldsfyrirlestrar hefjast aftur miðvikudaginn 13. janúar.

Á framhaldsfundum er íhugað saman í hópi og hlýtt á fyrirlestur um efni tengt íhuguninni. Tilvalið til að hittast, ræða saman og spyrja út í reynsluna. Framhaldsfundirnir eru í Skúlatúni 2 og hefjast kl. 20.

 
- Síðasti framhaldsfundur fyrir jól þann 9. desember.

Bók David Lynch Fiskað í djúpinu
kemur út um miðjan desember

Fiskað í djúpinu kvikmyndaleikstjórann David Lynch kemur út í íslenskri þýðingu um miðjan mánuðinn. Hægt er að panta bók hér á vefnum og kostar hún þá kr. 2.750 (verð út úr búð er 3.990). Allur ágóði af sölu bókarinnar rennur í styrktarsjóð til að greiða niður námsgjöld í Innhverfri íhugun.

PANTA

  fis
 

Rannsókn vikunnar
men

Pantið einkakönnun

Gott er að mæta af og til í einkakönnun. Einkakönnun veitir reynslu af áreynslulausri íhugun sem er lykillinn að góðum árangri. Pantið tíma í síma félagsins: 557 8008 eða með því að senda póst á ihugun@ihugun.is
Farsímar kennara félagsins eru:
Ari Halldórsson, sími 820 2857
Árni Sigurðsson, sími 662 1362
Kristinn Arnbjörnsson, sími 693 2502
Ivanka Sljivic, sími 861 2394 (eftir kl. 16)
Reynir Santuar, sími 866 0726

Einkakönnun er ókeypis fyrir þá sem hafa nýlega lært (2009) en kostar kr. 2.000 fyrir eldri íhugendur.

  karl


ÍSLENSKA ÍHUGUNARFÉLAGIÐ
Skúlatúni 2, 105 Reykjavík, Sími +(354) 557 8008, ihugun@ihugun.is