Ef
þú átt í erfiðleikum
með
að lesa
efni þessa pósts getur
þú
smellt HÉR |
 |
 |
|
| Helgarnámskeið
6.-8. nóvember |
Helgina
6.-8. nóvember næstkomandi
verður haldið helgarnámskeið
sem opið er öllum iðkendum
Innhverfrar íhugunar. Íhugun
á helgarnámskeiðum veitir
djúpa og endurnærandi hvíld
í friðsælu umhverfi. Lagt
verður af
stað eftir vinnu á föstudegi
og komið til
baka
um miðjan dag á sunnudegi.
Námskeiðsgjald verður
á
bilinu
20-25 þúsund
krónur (kennsla,
gisting og matur). Ekki
hefur verið gengið endanlega
frá
staðsetningu,
nokkrir staðir í nágrenni
Reykjavíkur koma til
greina.
Nánari upplýsingar í
næstu
Tíðindum.
Þeir
sem hafa áhuga á helgarnámskeiði
eru beðnir um að skrá sig
HÉR. |
|
| Að
vinna bug á þunglyndi í
kreppu |
Föstudaginn
9. október sl. var
haldin ráðstefna á vegum
miðstöðvar í leiðtogastjórnun
(Center for Leadership
Performance) á Manhattan
í New York sem bar heitið
„Að vinna bug á þunglyndi
í kreppu“. Frummælendur
voru Norman Rosenthal
geðlæknir, sem fyrstur
manna skilgreindi skammdegisþunglyndi
(SAD), Nancy Liebler
sálgreinandi og Gary
Kaplan taugalífeðlisfræðingur.
Erindi ráðstefnunnar
er hægt að horfa á
með því að smella HÉR.
Um
82 prósent karla
og 54 prósent kvenna
í Bandaríkjunum á
aldrinum 45-54 ára
telja atvinnu sína
vera uppsprettu steitu
og kvíða í lífinu.
Í kreppunni hefur
fjöldi karla sem
þjáist af fjárhagslegum
áhyggjum í þessum
aldurshópi aukist
úr 78 prósentum í
86 prósent frá því
í september 2008.
Sambærilegar tölur
hér á landi eru ekki
tiltækar en ætla
má að áhrif kreppunnar
á þunglyndi og kvíða
séu síst minni hér
á landi og
að öllum líkindum
meiri. Áætlað er
að árið 2020 verði
þunglyndi næst algengasta
heilsufarsvandamál
heims.
|
|
 |
| Dr.
Norman Rosenthal |
| |
|
|
| Innhverf
íhugun dregur úr streitu
og eykur andlegt heilbrigði |
Enn
bætast við rannsóknir
á áhrifum Innhverfrar
íhugunar.
Samkvæmt
rannsókn sem birtist í
nýjasta hefti tímaritsins
Integrative
Cancer Therapies, eykur Innhverf íhugun
andlegt heibrigði og tilfinningalega
vellíðan kvenna með brjóstakrabbamein
(Vol. 8, No. 3: September
2009).
Eitthundrað
konur með brjóstakrabbamein,
55 ára og eldri, tóku
þátt í rannsókninni sem
stóð í tvö ár við Saint
Joseph spítalann í Chicago.
|
|
|
| Framhaldsfundir
alla miðvikudaga kl. 20 |
21.
október:
Heildarsvið lífs.
Hljóðband með Maharishi,
1970. 30 mín.
Á
framhaldsfundum er íhugað
saman í hópi og hlýtt á
fyrirlestur um efni tengt
íhuguninni. Tilvalið til
að hittast, ræða saman og
spyrja út í reynsluna. Framhaldsfundirnir
verða alla næstu miðvikudaga
kl. 20 í Skúlatúni 2 og
eru ókeypis.
Einkakönnun
er ókeypis fyrir þá
sem hafa nýlega lært
(2009) en kostar kr.
2.000 fyrir eldri íhugendur.
|
|
 |
|
|
| Rannsókn
vikunnar |
|
|
| Pantið
einkakönnun |
Gott
er að mæta af og til
í einkakönnun. Einkakönnun
veitir reynslu af áreynslulausri
íhugun sem er lykillinn
að góðum árangri. Pantið
tíma í síma félagsins:
557 8008 eða með því
að senda póst á ihugun@ihugun.is
Farsímar
kennara félagsins eru:
Ari
Halldórsson, sími 820
2857
Árni
Sigurðsson, sími 662 1362
Kristinn
Arnbjörnsson, sími 693
2502
Ivanka
Sljivic, sími 861 2394
(eftir kl. 16)
Reynir
Santuar, sími 866 0726
Elke
Jennrich 896 8508 (til
loka október) |
|
 |
|
|
ÍSLENSKA
ÍHUGUNARFÉLAGIÐ
Skúlatúni
2, 105 Reykjavík,
Sími +(354) 557
8008, ihugun@ihugun.is
|
|