skraning
   
bordimahar
 
  13. júlí 2010

Dagskrá í júlí og ágúst

TVEIR KVÖLDFUNDIR FYRIR KONUR Í SKÚLATÚNI 2
Byrjað er kl. 17.30 að gera Yoga Asanas æfingar og íhuga í 20 mínútur. Því næst er borinn fram ljúffengur grænmetismatur. Kvöldinu lýkur með fyrirlestri og tei.

Fimmtudagur 15. júlí (eftir 2 daga)
Maharishi ræðir um hlutverk kvenna. Umræður um starf kvenna í íhugunarhreyfingunni.

Fimmtudagur 26. ágúst
Þróun æðri vitundarstiga. Fyrirlestur með Maharishi.

Kvöldverðurinn kostar kr. 800.

Vinsamlegast skráið ykkur með því að senda vefpóst á lisbetn@speedymail.org fyrir kl. 12 á hádegi daginn sem fundurinn hefst. Látið okkur einnig vita ef þið komist ekki en hafið áhuga á fundum fyrir konur á öðrum tíma.


FYRIR ALLA!

DAGUR ÞEKKINGAR
Laugardagur 24. júlí kl. 8.30 - 18.00

Þennan dag helgarðu þinni eigin vitundarþróun. Hann er eins og smækkuð mynd af helgarnámskeiðum sem við höldum úti á landi. Byrjað er á tveimur „hringjum“ líkt og á helgarnámskeiðum (ekki nauðsynlegt að íhuga áður en þið komið). Því næst er hópkönnun og upprifjun á grundvallaratriðum réttrar iðkunar. Að hádegisverði og göngutúr loknum er fræðsluefni. Deginum lýkur kl. 18 með íhugun. Ætlunin er að hafa þekkingardaga reglulega.
Verð kr. 5.000 með hádegismat.

UPPRIFJUNARFUNDUR
Þriðjudagur 27. júlí kl. 20.00

Allir sem lærðu Innhverfa íhugun á sl. ári hafa gagn af þessum fundi! Við munum rifja upp meginatriði varðandi rétta iðkun með svipuðum hætti og gert var á námskeiðinu og svara spurningum.



Dagleg hópiðkun fyrir alla í Skúlatúni 2
Alla virka daga er sameiginleg hópiðkun Innhverfrar íhugunar frá kl. 17:30 - 17:50. Hópiðkun veitir veitir dýpri reynslu og hefur jákvæð áhrif á samfélagið.

Einkakönnun

Gott er að mæta af og til í einkakönnun. Einkakönnun veitir reynslu af áreynslulausri íhugun sem er lykillinn að góðum árangri. Pantið tíma í síma félagsins: 557 8008 eða með því að senda póst á ihugun@ihugun.is
Farsímar kennara félagsins eru:
Ari Halldórsson, sími 820 2857
Árni Sigurðsson, sími 662 1362
Kristinn Arnbjörnsson, sími 693 2502
Ivanka Sljivic, sími 861 2394 (eftir kl. 16)
Lisbet Nörgaard, sími 896 8508
Reynir Santuar, sími 866 0726
Elke Jennrich, sími 896 8508 (frá 12. júlí - 5. sept 2010).

Einkakönnun er ókeypis.



ÍSLENSKA ÍHUGUNARFÉLAGIÐ
Skúlatúni 2, 105 Reykjavík, Sími +(354) 557 8008, ihugun@ihugun.is