Stuðlum
að betra samfélagi
með Innhverfri íhugun
Áframhald
verður á kennslu í
Innhverfri íhugun í
sumar. Námskeið verða
haldin reglulega og
mun verð námskeiðanna
fram eftir hausti áfram
vera
kr.
10.000. Þetta lága
gjald er einstakt, hvergi
á Vesturlöndum
er það svo lágt.
Hvetjið
því
vini og vandamenn
til
að læra Innhverfa
íhugun á
meðan þetta tækifæri
gefst. Við
Íslendingar höfum
einstakt
tækifæri sem stendur
til að koma hér upp
nægilega stórum hópi
íhugenda til þess
að
koma okkur hratt
upp
úr kreppunni og stuðla
að gerbreyttu og
betra samfélagi.
Breytt samvitund,
með
því að lífga grunnsvið
náttúrunnar,
er
eina leiðin til
að stuðla varanlega
að heilbrigðu og
samstilltu
samfélagi sem stefnir
sjálfkrafa í áttina
að velmegun og framförum.
Samfélagsleg
áhrif að verki
Margt
bendir til að
áhrifa
þess að svo margir
hafa lært Innhverfa
íhugun að undanförnu
gæti
nú þegar.
Áhrifanna var spáð
í
vorbyrjun
2009 við komu David
Lynch hingað til
lands.
Nú fáum við
stöðugt fréttir
af
því að neikvæð áhrif
kreppunnar
á samfélagið séu
minni á öllum sviðum
en búist hafði
verið
við. Með
því að lífga samsvið
allra lögmála
náttúrunnar,
hljóðasta svið
okkar
eigin vitundar með
Innhverfri
íhugun, stuðlum
við
að
aukinni samstillingu,
samræmi og
jafnvægi
í samfélaginu.
Í
kjölfarið verða
allar
hugsanir og
athafnir
fólks,
m.ö.o. samfélagsins
alls,
meira og meira
í
samræmi við
heildarsvið
allra lögmála
náttúrunnar
sem þýðir
að
færri
mistök eru
gerð.
Það
dregur úr fátækt,
slysum og afbrotum.
Efnahagsþrengingar
og önnur
samfélagsleg
mein og áföll
munu fyrr en
varir heyra
sögunni
til.
Hugsanir
og athafnir
verða sjálfkrafa
í átt til velmegunar
og framfara.
Og það þarf
aðeins
tiltölulega
fáa einstaklinga
sem stunda Innhverfa
íhugun til.
Um
50 ritrýndar
rannsóknir á
samfélagslegum
áhrifum Innhverfrar
íhugunar í
virtum
vísindatímaritum
staðfesta áhrif
Innhverfrar
íhugunar
og Sidhi tækninnar
á samfélagið.
Rannsóknirnar
eru grundvöllur
þess að hægt
er að segja
fyrir um áhrif
íhugunarhópa
á
samfélagið.
Náttúran
hreinsar til
Fylgi
stjórnmálamenn
þessum grunnbreytingum
sem verða á samfélaginu
ekki eftir, hlusti
þeir ekki eftir breyttum
tíðaranda, séu þeir ekki
í takti við fólkið
og breytta samvitund,
missa þeir völd.
Þannig sér náttúran
um að uppræta spillingu
og losa okkur við
óhæfa stjórnmálamenn. Aðeins
þeir
stjórnmálamenn sem
skynja breytta
samvitund og þau
tækifæri sem í henni
felast halda
velli.
Með
hækkandi samfélagsvitund
fáum við hæfari stjórnmálamenn
og betra samfélag.
Gerum
Ísland ósigrandi
Takmarkið
er að kenna einu
prósenti þjóðarinnar,
3.200 manns, Innhverfa
íhugun og um 200
manns Innhverfa íhugun
Sidhi tæknina.
Það mun stuðla að
ástandi algers innri
stöðugleika í samfélaginu eða
því sem Maharishi
kallaði ósigranleika (invincibility).
Ósigranleiki
er ástand þar sem
engin ytri
áhrif
ná að raska innri
stöðugleika samfélagsins.
Þó að nokkuð sé
í land að þetta
takmark náist
er í sjálfu sér
ekki erfitt að
ná því.
Mikilvægt er
að það gerist
hratt og að margir
leggi hönd á
plóg. Mikilvægt
er fyrir Íslenska
íhugunarfélagið
að vita af þeim
sem vilja bjóða
sig fram og aðstoða
okkur
við að ná þessu
takmarki með
hvers kyns aðstoð
og umfram allt
er mikilvægt
að allir haldi
áfram að iðka
Innhverfa íhugun.

Smellið
á myndina til að sjá
hana stærri.
|