skraning
Smelltu hér ef þú átt í erfiðleikum með að lesa þennan póst
 
bordimahar
 
  1. júní 2010

Vantar kokk á helgarnámskeið
Vill einhver taka að sér að elda ljúfan grænmetismat á helgarnámskeiðinu nú um helgina, 4. - 6. júní (sjá neðar)? Vinsaml. hafið samband við í síma 557 8008.


Námskeið og einkaráðgjöf í Maharishi Ayurveda
- með danska lækninum Charlotte Bech

Nú er brátt komið að námskeiði og einkaráðgjöf danska lækisins Charlotte Bech sem aflýsa þurfti í maí vegna gossins. Enn eru nokkur pláss laus í einkatíma. H


Dagskrá í júní

FRAMHALDSFYRIRLESTRAR
Þekking og reynsla haldast hönd í hönd. Að hlýða á framhaldsfyrirlestra hraðar vitundarþróun. Maharishi hélt því fram að þekking væri besta hreinsunin þar sem hún eyddi efasemdum á þroskabrautinni.
Framhaldsfyrirlestrar hefjast kl. 19.30 á fimmtudögum (ekki miðvikudögum eins og áður) með hópíhugun, spurningum um iðkunina, fréttum utan úr heimi og myndbandsfyrirlestri. Hægt er að sleppta íhugun og mæta beint á fyrirlestur kl. 20.00.

Fimmtudagur 3. júní
Einkenni hærri vitundarstiga.

Fyrirlestur með Maharishi.

Fimmtudagur 10. júní
Innhverf íhugun í fyrirtækjum (Corporate Development Program)

Innhverf íhugun hefur verið notuð í fyrirtækjum um allan heim með góðum árangri fyrir starfsmenn og fyrirtækin í heild. Horft verður á upptökur úr nokkrum fyrirtækum.

Fimmtudagur, 17. júní
School of thought

Ný kvikmynd um sem ber heitið „School of Thought“ þar sem David Lynch fjallar um kosti þess að taka Innhverfa íhugun upp í skólum.

Fimmtudagur, 23. júní.
Sjá röð fyrirlestra með danska lækninum Charlotte Bech.

Fimmtudagur, 1. júlí
Yoga-flug

Skoðuð verður reynsla fólks af líkamlegu svifi í gegnum aldirnar og reynsla núverandi iðkenda TM Sidhi-tækninnar (framhaldstækni Innhverfrar íhugunar). Sýnd verður tiltölulega ný bók um þetta efni sem ber heitið Yogic flying.

ANNAÐ Á DAGSKRÁ Í JÚNÍ

4. – 6. júní
Helgarnámskeið við Laxá í Kjós

Íhugun á helgarnámskeiðum veitir djúpa og endurnærandi hvíld í friðsælu umhverfi, þar sem íhugað er meira en tuttugu mínútur tvisvar á dag undir leiðsögn auk þess em hlýtt er á fyrirlestra með Maharishi.
Námskeiðið hefst með fundi og hópíhugun kl. 18 föstudaginn 4. júní og lýkur kl. 16 þann 6. júní. Enn eru nokkur pláss laus. Leitið upplýsinga hjá Örnu virka daga frá kl. 13–16 í síma 557 8008.
Verð með gistingu, mat og kennslu er kr. 15.000.

Sunnudagur 6. júní kl. 19.30
Fundur fyrir konur.

Í maí sl. var haldinn góður fundur fyrir konur og mundum við gjarnan halda áfram að hittast einu sinni í mánuði. Fundurinn í júní byggðist á hinum fallega fyrirlestri Maharishi: Upptök, farvegur og takmark ástar (Source, course and goal of love).
Á fundinum munum við jafnframt ræða frekari starfsemi kvenna í landinu.
 
Sunnudagur 13. júní kl. 19.30
Félag ungra íhugenda (Students International Meditation Society).
Fundur fyrir unga iðkendur Innhverfrar íhugunar (yngri en 35 ára).
Maharishi lagði jafnan áherslu á að færa ungu fólki þekkingu sína og stofnaði SIMS (Students International Meditation Society) sem hefur að undanförnu gengið í endurnýjun lífdagana um allan heim og blásið lífi í starfsemi hreyfingarinnar.
Meðal annars verður starfsemi Maharishi stjórnunarháskólans (MUM) kynnt og möguleikar á námi þar, starfsemi sjónvarpsstöðvar David Lynch o.fl.
Við munum jafnframt skoða hvað er að gerast í ungliðahreyfingum um allan heim og ræða tillögur og möguleika á stofnun slíkrar hreyfingar hér á landi. Komið verður á símafundi með leiðtogum erlendra ungliðahreyfinga til að hlera hvað er að gerast. Sendið vefpóst á lisbetn@speedymail.org ef þið komist ekki á fundinn en hafið engu að síður áhuga á upplýsingum um SIMS á Íslandi.


Einkakönnun

Gott er að mæta af og til í einkakönnun. Einkakönnun veitir reynslu af áreynslulausri íhugun sem er lykillinn að góðum árangri. Pantið tíma í síma félagsins: 557 8008 eða með því að senda póst á ihugun@ihugun.is
Farsímar kennara félagsins eru:
Ari Halldórsson, sími 820 2857
Árni Sigurðsson, sími 662 1362
Kristinn Arnbjörnsson, sími 693 2502
Ivanka Sljivic, sími 861 2394 (eftir kl. 16)
Lisbet Nörgaard, sími 896 8508
Reynir Santuar, sími 866 0726

Einkakönnun er ókeypis fyrir þá sem hafa nýlega lært (2009-10) en kostar kr. 2.000 fyrir eldri íhugendur.


ÍSLENSKA ÍHUGUNARFÉLAGIÐ
Skúlatúni 2, 105 Reykjavík, Sími +(354) 557 8008, ihugun@ihugun.is