Frestun
á námskeiði
og einkaráðgjöf í Maharishi
Ayurveda
-
með danska lækninum Charlotte
Bech
Fresta
þurfti þessu námskeiði
sem halda átti í apríl
sl.
vegna
truflana á flugi til
landsins.
Námskeiðið
hefst í staðinn þann
23.
júní
n.k. H
|
Atburðir
í
maí í Skúlatúni 2
Framhaldsfyrirlestrar
Þekking
og reynsla haldast hönd
í hönd. Að hlýða á framhaldsfyrirlestra
hraðar vitundarþróun.
Maharishi hélt því fram
að þekking væri besta
hreinsunin þar sem hún
eyddi efasemdum á þroskabrautinni.
Framhaldsfyrirlestrar
hefjast kl. 19.30 með hópíhugun,
spurningum um iðkunina,
fréttum utan úr heimi og
myndbandsfyrirlestri um
eftirfarandi:
Miðvikudagur
5. maí: Innhverf íhugun
Sidhi-kerfið
Fyrirhugað
er að bjóða öllum sem hafa
íhugað reglulega undanfarna
mánuði upp á námskeið í
Innhverfri íhugun Sidhi-kerfinu.
Þessi tækni eykur verulega
sælutilfinningu, gleði og
stuðning náttúrunnar auk
þess að stuðla að samstilltara
samfélagi. Við munum fara
í saumana á þekkingunni
að baki þessari framhaldstækni
og vísindarannsóknum sem
sýna jákvæð áhrif á einstaklinginn,
samfélagið og heiminn.
Þeir
sem ekki eiga þess kost
að sækja þennan fund en
hafa áhuga á að sækja námskeið
í Sidhi-tækninni eða myndu
vilja hlýða á kynningu
síðar eru vinsamlegast beðnir
að senda
vefpóst á lisbetn@speedymail.org
Miðvikudagur
12. maí: Maharishi um
myndlist
og tónlist
Maharishi
hélt þennan einstaka fyrirlestur
í mars árið 2006 þegar
haldnar voru ráðstefnuraðir
í Brahmastan eða miðju
Indlands.
Hér er með einstökum hætti
útskýrt hvernig allar umbreytingar
eru listrænar ef þær leiða
til aukinnar sæluvitundar.
Miðvikudagur
19. maí: David Lynch
– Athugun
á möguleikum vitundarinnar.
Einn
af þekktari fyrirlestrum
David Lynch þar sem hann
svarar
spurningum
nemenda, einkum
í myndlist og kvikmyndagerð.
Miðvikudagur
26. Maí: Kyrrðarstund í
skólum.
Innhverf
íhugun hefur verið tekin
upp í hundruðum skóla víða
um heim sem „kyrrðarstund“.
Við skoðum hvað liggur að
baki þessu og þann frábæra
árangur sem náðst hefur.
Annað
á döfinni:
Sunnudagur
9. maí. Fresta þarf þessum
áður auglýsta fundi fyrir
ungt fólk. Hann verður auglýstur
á ný í júní.
Fimmtudagur
13. maí kl. 19.30
Fundur
fyrir konur
Maharishi
óskaði jafnan eftir að
innan hreyfingar sinnar
starfaði kvennaarmur. Allt
frá upphafsdögunum heiðraði
hann og virti konur
sem „mæður mannkynsins“.
Í desember 2007 varð draumur
hans að veruleika þegar
hann stofnaði „The Global
Mother Divine Organization“
(skammst. GMDO) eða Alheimssamtök
hinnar guðlegu móður.
Við munum horfa á þennan
atburð á myndbandi og
fræðast um þróun kvennaarmsins
víða um heim, hinar fimm
stofnanir hans auk þess
að bjóða
öllum konum að taka þátt.
Þær
konur sem ekki komast á
þennan fund en hafa áhuga
á að fá frekari upplýsingar
geta sent póst á Ivönku
Sljivic, stjórnanda GMDO
á Íslandi: ivanka@internet.is
Sunnudagur
16. maí kl. 8.30 – 18.00
Dagur
þekkingar
Verð:
kr. 5.000. Hádegismatur
innifalinn.
Staður:
Skúlatún 2
Dagur
þekkingar er dagur sem
þú helgar þínum persónulega
þroska – eins konar smækkuð
útgáfa af helgarnámskeiðunum
sem haldin hafa verið nokkrum
sinnum undanfarið utan
við bæjarmörkin.
Byrjað
er kl. 8.30 að morgni með
tvöfaldri íhugun eins og
á helgarnámskeiðum (ekki
nauðsynlegt að íhuga heima
áður). Því næst verður
hópkönnun og upprifjun á
grundvallaratriðum réttrar
íhugunar. Boðið er upp
á hádegismat og eftir góðan
göngutúr verður fræðslufundur
(myndband með Maharishi).
Deginum lýkur kl. 18 að
kvöldi með íhugun.
Lisbet
Nörgaard, kennari frá Danmörku,
stjórnar þessum fundum sem
fram fara á ensku en þeir
sem þurfa þýðingu geta fengið
hana.
Pantið
einkakönnun
|