skraning
Smelltu hér ef þú átt í erfiðleikum með að lesa þennan póst
 
bordimahar
 
  13. apríl 2010

Kæru íhugendur.

Ég heiti Lisbet Nörgaard og er danskur kennari í innhverfri íhugun. Ég hef velisrið í fullu starfi fyrir hreyfingu Maharishi í 35 ár. Sl. 25 ár hef ég unnið að alþjóðlegum verkefnum í mörgum löndum. Siðasta vor staldraði ég stutt við hér á Íslandi og er glöð að vera komin aftur og staldra vonandi lengur við að þessu sinni. Það er stórkostlegt til þess að vita að svo margir hafi lært hér að undanförnu og mig langar að óska ykkur til hamingju með að vera vakandi og nýta ykkur tækifærið til eigin þroska um leið og þið hjálpið Íslandi að komast út úr yfirstandandi kreppu.

Framhaldsfyrirlestrar
Ég mun einbeita mér að framhaldsfyrirlestrum, einkakönnunum og helgarnámskeiðum. Takmarkið er að gera kennslumiðstöðina að stað sem fólk langar að koma á til að íhuga og sækja sér fræðslu. Ég vona að þið munið fljótlega byrja að hugsa um kennslumiðstöðina í Skúlatúni sem ykkkar annað heimili.

Við munum leitast við að gera framhaldsfyrirlestra á miðvikudögum markvissari. Þeir munu framvegis hefjast kl. 19.30 (ath. ekki kl. 20.00 eins og verið hefur).

Þekking og reynsla fara hönd í hönd. Að sækja framhaldsfyrirlestra hraðar þeim þroska sem á sér stað með íhuguninni. Haft er eftir Maharishi að þekking sé áhrifaríkasta hreinsunin þar sem hún upprætir efasemdir á leið til andlegs þroska.

Við munum byrja hvern fyrirlestur á fréttum utan úr heimi. Á hverjum degi berast spennandi fréttir af vexti hreyfingarinnar um allan heim. Hafið þið t.d. frétt að brasilísk stjórnvöld hafa óskað eftir að 1,5 milljónum barna í skólum landsins verði kennd Innhverf íhugun? Þið munið fá tilfinngu fyrir hinum mikla vexti hreyfinarinnar þessa dagana.

Á framhaldsfyrirlestrum verður hópíhugun eða hópkönnun og spurningum um iðkunina svarað. Fyrirlestrarnir verða á ensku en stutt samantekt á íslensku.


Dagskrá næstu framhaldsfyrirlestra:

Miðvikudagur, 14. apríl 2010
„Að bjarga þeim sem minnst mega sín“ (Saving the Disposable Ones)

Sýnishorn úr nýrri mynd sem framleidd er af David Lynch um heimilislaus börn í Kólumbíu sem kaþólskur prestur, Faðir Gabriel Mejia, hefur bjargað af götunni og kennt innhverfa íhugun með frábærum árangri.

Miðvikudagur, 21. apríl 2010
Viðtal Matti Golan við Maharishi

Matti Golan er þekktur ísraelskur blaðamaður, fyrrverandi ritstjóri tveggja þekktra dagblaða og höfundur margra bóka, s.s. The Secret Conversations of Henry Kissiner og The Geneva Crisis. Í þessu viðtali frá 1976 setur Maharishi á sinn hláturmilda hátt fram þekkingu á samvitundinni, blaðamennsku, stjórnvöldum, vilja Guðs og náttúrunnar, ráð við deilunum fyrir botni Miðjararhafs og margt fleira.

Miðvikudagur, 28. apríl 2010
Ayurveda. Frelsi frá sársauka.
Hvað bera að gera við verk í höndum, fótum, baki, liðamótum og vöðvum. Gigt.
Hluti af fyrirlestraröð danska Aurvedalæknisins Charlotte Bech (sjá hér). Ath. að aðgangseyrir er kr. 2.500 fyrir þennan fyrirlestur.


Einkakönnun fyrir konur
Ég hvet allar konur til að panta tíma hjá mér í einkakönnun. Ef íhugunin virðist ekki skila tilætluðum árangri eða ef íhugunin hefur af einhverjum ástæðum dottið upp fyrir tímabundið er gott að koma í könnun til þess að tryggja stöðugt hámarks árangur. Við ráðleggjum fólki að koma í einkakönnun einu sinni í mánuði fyrstu 6 mánuðina eftir kennslu. Í einkakönnun er einnig hægt að spyrja persónulegra spurninga um iðkunina.

Ég verð með tíma á þriðjudögum og fimmtudögum fyrir einkakönnun frá kl. 13.00-16.00 og 20.00-21.00. Einkakönnun tekur að jafnaði 30 mínútur. Vinsamlegast sendið póst á lisbetn@speedymail.org með ósk um tiltekinn tíma eða hringið í síma 896 8508.

Könnun fer fram á ensku eða dönsku en þær konur sem vilja könnun á íslensku sendi SMS eða hringi í Ivönku síma 861 2394.

Hlakka til að hitta ykkur öll.

Kær kveðja,

Lisbet