innhverf_ihugunMaharishi Mahesh Yogi
  Forsíða Innhverf íhugun Námskeið Skráning Tíðindi íhugunarfélagsins Átaksverkefni David Lynch
 
Hvað er Innhverf íhugun?

Innhverf íhugun, íhugunartækni Maharishi Mahesh Yogi, er einföld, náttúruleg tækni sem iðkuð er í 15 til 20 mínútur kvölds og morgna í stól með lokuð augu. Einfalt er að læra tæknina, auðvelt að iðka hana og iðkunin felur ekki í sér neins konar heimspeki, hegðun eða lífsvenjur. Rúmlega sex milljónir manna um allan heim, fólk á öllum aldri, af ólíkum uppruna og með ólíkan menningarlegan og trúarlegan bakgrunn iðkar Innhverfa íhugun.

Meðan á iðkun stendur kyrrist hugurinn smám saman þar til hljóðasta ástandi er náð þ.e.a.s. „tærri vitund“ sem lýsa má sem sviði allra möguleika hugans. Í þessu ástandi starfar heilinn á einstaklega samræmdan hátt á sama tíma og líkaminn öðlast djúpa hvíld og losar streitu.

Samkvæmt kenningum skammtaeðlisfræðinnar er tær vitund eitt og hið sama og samsvið allra lögmála náttúrunnar (Unified Field of Natural Law), sameiginleg uppspretta ólíkra lögmála náttúrunnar sem stýrir skipulegri þróun alheimsins. Reglubundin reynsla af samsviðinu með Innhverfri íhugun bætir alla þætti í lífi einstaklingsins og samfélagsins.

Meira en 600 rannsóknir hafa verið gerðar við 250 háskóla og rannsóknarstofnanir í 33 löndum sem staðfesta áhrif innhverfrar íhugunar á huga, líkama, hegðun, og samfélag.

Þegar Innhverf íhugun er iðkuð af hópi fólks framkallur hún samstillingaráhrif í samfélaginu sem hafa verið sannreynd með rannsóknum og felast í almennum framförum sem og fækkun neikvæðra þátta á borð við glæpi og ofbeldi.

Þessar rannsóknir sýna að hagkvæmt er að auka lífsgæði hvaða þjóðar sem er með stórum og stöðugum hópum fólks sem iðkar framhaldsaðferðir innhverfrar íhugunar.

Samstillt þjóðarvitund mun á eðlilegan hátt valda miklum breytingum í átt til jákvæðni, velmegunar og framfara á öllum sviðum.

 

 
ihugun

Tenglar á erlendar vefsíður
um Innhverfa íhugun
:
TMbusiness.org
DoctorsonTM.org
PermanentPeace.org
DavidLynchFoundation.org
DLF.TV


ÍSLENSKA ÍHUGUNARFÉLAGIÐ
Skúlatúni 2, 101 Reykjavík, Sími +(354) 557 8008, ihugun@ihugun.is
skraning