innhverf_ihugun mahar Maharishi
Mahesh Yogi
hk
  Forsíða Innhverf íhugun Námskeið Skráning Tíðindi íhugunarfélagsins Átaksverkefni David Lynch
 

Námskeið og einkaráðgjöf í Maharishi Ayurveda
- með danska lækninum Charlotte Bech

Íslenska íhugunarfélgaið stendur fyrir námskeiði og einkaráðgjöf í Maharishi Ayurveda dagana 23. - 28. júní næstkomandi. Ayurveda – elsta náttúrulækningakerfi veraldar – felur í sér aðferðir til að koma í veg fyrir sjúkdóma á frumstigi og stuðla að fullkomnu heilbrigði. Þetta er sama námskeið og fresta þurfti í apríl sl. vegna truflana á flugi.

Ayurveda hefur verið notað með góðum árangri í meðferð við ýmsum kvillum og sjúkdómum, s.s. liðagigt, háþrýstingi, astma, lungnaþembu, stíflum í ennis- og kinnholum, höfuðverk, exemi, psoriasis, hægðatregðu og sykursýki.

Samkvæmt Ayurveda er fullkomið heilbrigði annað og meira en það að veikjast ekki. Heilbrigði er ástand þar sem hugur, líkami, tilfinningar og skynfæri starfa saman í fullkomnu jafnvægi.
Streitufullt líf nútímafólks stuðlar gjarnan að ójafnvægi sem á endanum getur leitt til þess að sjúkdómar ná að grafa um sig. Í stað lyfja, sem oft gera ekki annað en slá á einkenni og valda aukaverkunum, felur Ayurveda í sér margvíslegar aðferðir til að leiðrétta undirliggjandi ójafnvægi.

Á níunda áratug síðustu aldar hóf Maharishi Mahesh Yogi - ásamt vísindamönnum, fræðimönnum og læknum - að skýra og endurvekja Ayurveda-fræðin undir heitinu Maharishi Ayurveda. Í því skyni menntaði hann fjölda lækna vestrænna lækna í grunnatriðum Ayurveda, stóð fyrir ráðstefnum helstu sérfræðinga á þessu sviði og setti á fót Ayurveda heilsugælustöðvar og rannóknastofnanir í þeim tilgangi að auka heilbrigði í samfélaginu.


Dagskrá námskeiðsins
Staður: Skúlatún 2, 3. hæð, Reykjavík
Tími: 20.00 - 22.00

Miðvikudagur 23. júní
Vísindin um lífið – kynning. Vedísk læknisfræði og Maharishi Ayurveda. Líkamsgerðirnar þrjár. Lærið að greina ykk­ar eigin líkamsgerð og hvaða lífsmáti og mataræði hentar ykkar líkamsgerð best.

Fimmtudagur 24. júní
Hinar þrjár mismunandi andlegu „týpur“. Lærið að þekkja ykkar eigin andlegu gerð og hvaða lífsmáti og mataræði hentar best.

Föstudagur 25. júní
Frelsi frá streitu. hvernig hægt er vinna gegn streitu, síþreytu, þunglyndi, eirðarleysi, taugaveiklun, svefnleysi og kvíða.

Laugardagur 26. júní
Frelsi frá sársauka. Hvernig hægt er að vinna gegn verkjum í höndum og fótum, baki, liðamótum, vöðvum. Gigt.

Sunnudagur 27. júní
Allar konur eru prinsessur. Hár, fegurð, tíðir, frjósemi, tíðahvörf, hormónavandamál og tilfinningaójafnvægi. Hvernig hægt er að vinna gegn húðvandamálum. Aðeins fyrir konur.

Verð: Hægt er að sækja einstaka fyrirlestra, einn eða fleiri. Verð fyrir einn fyrirlestur er kr. 2.500.

  char
     
Charlotte Bech er læknir og fræðimaður sem hefur skrifað bækur um Ayurveda og rekur eigin læknastofu í Kaupmannahöfn. Árið 2009 gaf hún út metsölubókina „Gott og hollt árið um kring“. Charlotte nam læknisfræði við Kaupmannahafnarháskóla og starfaði þar á sjúkrahúsum og sem heimilislæknir. Hún starfaði einnig um árabil sem læknir í Bandaríkjunum þar sem hún var við nám og skrif­aði m.a. rannsóknarritgerð um forvarnir og meðferð við krabbameini með heildrænum aðferðum.
     

 
Dagleg hópiðkun

Innhverfrar íhugunar alla virka daga kl. 17:30 í Skúlatúni 2
 

SKRÁNING HÉR

   


Charotte veitir jafnframt klukkustundar einkaráðgjöf sem byggir á ævaforni og afar þróaðri púlsgreiningaraðferð. Nauðsynlegt er að panta tíma. Klukkutíma einkaráðgjöf kostar kr. 19.000.
   

Allar nánari upplýsingar og skráning hjá Íslenska íhugunarfélaginu
í síma 557 8008 virka daga frá kl. 13 - 16.
www.ihugun.is - arna@ihugun.is

   


ÍSLENSKA ÍHUGUNARFÉLAGIÐ
Skúlatúni 2, 105 Reykjavík, Sími +(354) 557 8008, ihugun@ihugun.is
skraning